Sérsniðin gluggatjöld

Fáðu tilboð í draumagluggatjöldin þín

Breitt úrval af hágæða gluggatjöldum, sérsniðin að þínum gluggum og þínum smekk — frá fyrstu mælingu til uppsetningar á staðnum.

Skoða vöruúrval
Samkeppnishæf verð Persónuleg þjónusta Framúrskarandi vinnubrögð
Plíseruð gardína, hangandi gluggatjöld og viðarplata frá Móðins Gluggatjöldum

Samkeppnishæf verð

Gæði og góð kjör fara saman í hverju tilboði sem við sendum frá okkur.

Persónuleg þjónusta

Frá fyrirspurn að uppsetningu — við höldum ferlinu einföldu og hröðu.

Framúrskarandi vinnubrögð

Hvert verkefni er handsniðið að þínum gluggum, ekki fjöldaframleitt.

Vöruúrval

Lausn fyrir hvern glugga

Tíu vöruflokkar, allir sérsniðnir eftir máli.

Plíseraðar gardínur

Stílhrein og hagnýt lausn sem sameinar fallegt útlit, einstaka birtustýringu og næði. Einföld í uppsetningu og viðhaldi.

Skoða myndir

Honeycomb gluggatjöld

Býflugnabús-formið fangar loft í hverjum sekk, sem einangrar og dempar hljóð — og gefur nútímalegt yfirbragð.

Skoða myndir

Hangandi gluggatjöld

Löng, hangandi gluggatjöld sem hanga beint niður úr loft- eða veggbraut og gefa rýminu hlýlegt og heilsteypt yfirbragð. Breitt úrval af efnum, litum og brautum sem hentar hverju rými.

Skoða myndir

Felligardínur

Klassískar felligardínur sem falla mjúklega í reglulegar fellingar þegar þær eru dregnar upp — hnitmiðuð og hlýleg lausn sem hentar jafnt stofum, svefnherbergjum og skrifstofum.

Skoða myndir

Rúllugardínur

Sígild og tímalaus lausn sem býður upp á einfalda og virka sólarvörn fyrir öll rými.

Skoða myndir

Strimlagardínur

Hagnýt og nútímaleg lausn fyrir stóra gluggafleti og svalahurðir, þar sem þarf góða stjórn á birtu.

Skoða myndir

Rimlagardínur

Tímalaus lausn með stillanlegum spjöldum sem gefa fullkomna stjórn á birtu, næði og andrúmslofti.

Skoða myndir

Markísur

Allar gerðir og litir af markísum, sniðnar eftir máli — fyrir svalir, verandir og pergólur.

Skoða myndir

Viðarpanill

FORM AT WOOD viðarplötur, vinsælar meðal arkitekta og innanhússhönnuða — hannaðar fyrir hvert verkefni.

Skoða myndir

Hljóðvist

Sexhyrndar viðar-hljóðplötur frá FORM AT WOOD sem draga úr ómi og bæta hljóðvist í hvaða rými sem er — jafn fallegar og þær eru hagnýtar.

Skoða myndir

Ferlið

Frá máli í tilboð, að uppsettum gluggatjöldum

01

Þú sendir okkur mál

Sendu inn málin þín á vefnum eða í tölvupósti og fáðu tilboð sem hentar þínum gluggum og þínu budgeti.

02

Við mælum og staðfestum

Þegar þú samþykkir tilboðið tökum við endanlegt mál og komum með efnis og litaprufur áður en framleiðsla hefst.

03

Afhending eða uppsetning

Þú færð gluggatjöldin afhent, eða við setjum þau upp hjá þér — tilbúin til notkunar. Að jafnaði 2–5 vikur.

„Vertu Móðins — gluggatjöld sem eru hönnuð fyrir þig, ekki fjöldann.“

Hjá Móðins finnur þú breitt úrval af hágæða gluggatjöldum sem eru sérsniðin að þínum þörfum. Hvort sem þú ert að leita að plíseruðum gardínum, rimlum, rúllugardínum eða markísu — við höfum lausnina.

Við leggjum áherslu á samkeppnishæf verð, snögga þjónustu og framúrskarandi vinnubrögð, svo þú getir treyst því að útkoman verði bæði falleg og endingargóð.

Efnin og kerfin sem við notum koma frá rótgrónum evrópskum framleiðanda með áratuga reynslu í hönnun og framleiðslu gluggatjalda, svo þú getur treyst gæðunum frá fyrsta degi.

Hafa samband

Segðu okkur frá glugganum þínum

Sendu okkur mál og myndir af glugganum þínum, og við sendum þér tilboð sem hentar — engin skuldbinding.